Helvítis disco Þetta er ekki bara eitthvað lag, þetta er grafalvarlegur boðskapur og hver sá sem er þessu
ósammála á að drulla sér út af vefnum mínum STRAX!!!
Við erum að tala um mjög hættulegan hlut hérna, nefnilega Discó - mafíuna sem er mesta vá
sem mannkynið hefur staðið frammi fyrir hingað til og hefur valdið ótrúlegum skaða.
Sjóslys, fellibylir, farsóttir, hátt verð á leigumarkaðinum, steypuskemdir og fjöldamorð
allt er þetta discoinu að kenna og mikið meira til.

Þetta ágæta lag við þennan heilaga boðskap á Þorri.

KELI


Helvítis disco

Djöfullinn hirð´ etta disco
og dansandi hommana með.
Grenjandi jurtir með gatið í kaskó,
gretta sig, hafiði séð.
Þær negrana skvera í flúorsins frumskóg
og fljótlega þykknar mitt geð.

Við discoið ættum að drepa
og drekka því útfararskál.
Niður svo myndum við þreytuna þrepa,
þeyta öllu ruslinu á bál.
Rokkarar þramma með síðhærða sepa,
syngjandi blúslög og sál.

En discoið vill ekki deyja,
ég djöflinum kenni um það.
Ég haltra á barinn til háfættra meyja
sem hugsa, ég veit ekki hvað.
Töffarinn kann yfir tárum að þegja,
er tussurnar ríf´ann í spað.

Discoið djöfullinn hirði,
með dimmljósi plasti og AIDS.
Truntulegt bömp, ekki tíkrónu virði
og takturinn geldur án heits.
Þið gæfulaus fífl með glimmersins byrði,
ég grátandi hlusta á Waits.

til baka